Heilbrigðisstofnun Þingeyinga

Heilbrigðisstofnun Þingeyinga auglýsir hér með starf sjúkraþjálfara laust til umsóknar


Um er að ræða 40% starf við stofnunina og 60% sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari, eða eftir nánara samkomulagi.Starfsemi sjúkraþjálfara við stofnunina fer fram á sjúkradeild og öldrunarlækningadeild. Um er að ræða þverfaglegt samstarf við lækna, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa og annað heilbrigðisstarfsfólk.

Aðal starfstöð sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara er á Húsavík en einnig eru starfsstöðvar í Mývatnssveit og Laugum í Reykjadal sem hægt er að nýta ef áhugi er fyrir hendi. Starfið er laust frá 1. júlí n.k.
Umsóknir skulu berast til forstjóra HÞ, Jóns Helga Björnssonar, Auðbrekku 4, 640 Húsavík eða í netpósti á netfangið jonhelgi@heilthing.is. Einnig er hægt að senda rafræna umsókn á heimasíðu HÞ: www.heilthing.is.
Umsóknarfrestur er til 25. júní 2009.


Laun við HÞ eru samkvæmt samningi Fjármálaráðuneytisins við Stéttarfélag sjúkraþjálfara og stofnanasamningi HÞ við sama félag.
Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri ásamt Regínu Sigurðardóttur, fjarmálastjóra regina@heilthing.is, Hrefnu Regínu Gunnarsdóttur, sjúkraþjálfara hrefna@heilthing.is, Björgu Björnsdóttur, sjúkraþjálfara bjorgbjorns@heilhus.is og Ásgeiri Böðvarssyni, yfirlækni asgeir@heilthing.is, síminn er 464-0500
Aðal starfstöð er á Húsavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
 



Til baka