Sjúkraþjálfari við Sjúkrahúsið á Akureyri

birt 5. júní

Sjúkraþjálfari óskast til starfafrá 1. september 2011 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs við endurhæfingardeild á Kristnesi eða fasta stöðu við bráðadeildir FSA. Æskilegt starfshlutfall er 90 til 100%, möguleiki á að taka að sér ferilverk er til staðar.

Starfsemi sjúkraþjálfunar FSA fer fram á endurhæfingardeild, öldrunarlækningadeild og á bráðadeildum. Áhersla er lögð á faglega þróun og þverfaglegt samstarf við lækna, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa og annað heilbrigðisstarfsfólk. Við sjúkraþjálfun vinna samtals 14 manns í tæplega 11 stöðugildum. Unnið er út frá tveimur starfsstöðvum.

Í gildi er samstarfssamningur  milli FSA og Háskólans á Akureyri um kennslu, rannsóknir og endurmenntun.

sjá nánar í auglýsingu hér að neðan



Skjöl

Auglýsing
Til baka