Námskeið FS: Áhugahvetjandi samtal

Grunnnámskeið

Lokað fyrir skráningu

  • Dagsetning:
    11. mars 2017 - 12. mars 2017
  • Staðsetning: Húsnæði Ísí, Engjavegi 6
  • Bókunartímabil:
    12. janúar 2017 - 25. febrúar 2017
  • Almennt verð:
    80.000 kr.
  • Fagdeild verð:
    74.000 kr.

Athugið lækkað verð!

Áhugahvetjandi samtal (e. Motivational Interviewing) er notað bæði með fullorðnum og unglingum sem gætu verið í þörf fyrir breytingar á lífsstíl eða hegðun. Sumir hafa hugsanlega ekki komið auga á þörf fyrir breytingar eða eru alfarið á móti þeim, á meðan aðrir hafa íhugað breytingar en eru á báðum áttum. Aðferðin sem hér er um að ræða miðar að því að virkja vilja skjólstæðings til jákvæðra breytinga á lífsstíl og hegðun. Þátttakendur efla færni sína í að mæta skjólstæðingi þar sem hann er staddur, laða fram og ýta undir hugsanir og tillögur hans sjálfs um jákvæðar breytingar. Aðferðin byggist á skilningi fagaðila á ferli samtalsins og vilja til samvinnu.

Fagfólk sem tileinkar sér þessa aðferð eflir færni sína í að aðstoða fólk í að breyta hegðun. Mikilvægt einkenni áhugahvetjandi samtals er einnig að forðast ákveðnar leiðir í samtalinu, eins og siðapredikanir, sem eru til þess fallnar að ýta undir mótþróa og draga úr vilja til breytinga. Borin er virðing fyrir sjálfstæði skjólstæðingsins, rétti hans og getu til að taka eigin ákvarðanir innan viðeigandi marka hverju sinni.

Reynsla þeirra sem hafa lært og notað áhugahvetjandi samtal er að vinnan verður skemmtilegri og árangursríkari, sem getur dregið úr líkum á kulnun í starfi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að umrædd nálgun ber árangur bæði í bráðaþjónustu og meðferðarvinnu.

Á námskeiðinu er farið yfir fræðilegan bakgrunn, grunnhugmyndir og áhersla er lögð á æfingar. Fjallað er um kóðun á samtalsbútum og greiningarkerfið MITI kynnt, en það kerfi tryggir gæði í framkvæmdinni og að aðferðin sé notuð rétt. Þátttakendur skila inn einum 20 mín. löngum samtalsbút (í starfrænu formi) til greiningar á meðan á námskeiðinu stendur.

Kennarar á námskeiðinu eru: Dr.Helga Sif Friðjónsdóttir, Dr.Sveinbjörn Kristjánsson og Héðinn Svarfdal Björnsson MA, MPhil, frá Áhugahvöt sf. Soffía Eiríksdóttir BSc, MPH, sinnir mati á viðtölum og endurgjöf.

Skráningafrestur til 25.febrúar 2017
Nánari upplýsingar: fraedslunefndfs@gmail.com

 

Lokað fyrir skráningu