Viðburðir

Haustfagnaður Norðurlandsdeildar FS

Föstudaginn 16. okt kl 18

  • 16.10.2015, 18:00 - 21:00, Efling - Akureyri

Kæru félagar

Ég vil minna ykkur á haustfagnaðinn næsta föstudag 16/10 frá 18:00-19:30 í Eflingu, takið stundina frá!

Við fáum tvö fræðsluerindi;  annars vegar um slitgigtarskólann í Eflingu sem Þorleifur Stefánsson sér um og svo kemur Unnur Pétursdóttir og segir okkur frá því sem er efst á baugi hjá sjúkraþjálfurum á landsvísu...jafnvel heimsvísu ef ég þekki hana rétt :-)

Eftir fræðsluna eigum við notalega stund til að spjalla og njóta léttra veitinga.

 

Bestu kveðjur
fh. stjórnar N-FS  
Kristín Rós