Handleiðsla – Master Class
Er þig farið að lengja eftir fræðslu og umræðu um faghandleiðslu?
Master Class námskeið um faghandleiðslu verður á Grand hóteli þann 27. mars 2015 á vegum Handleiðslufélags Íslands.
Kennari verður Peter Hawkins
Peter Hawkins er forseti APECS (Association of Professional Executive Coaching and Supervision). Peter er meðal fremstu ráðgjafa, þjálfara og rannsakenda á sviði stefnumótunar og leiðtogafræða. Þá hefur hann verið ráðgjafi margra fremstu fyrirtækja um allan heim þar á meðal í Evrópu, Austurlöndum, Suður Afríku og Bandaríkjum þar sem hann aðstoðaði vinnuhópa og stjórnir við endurskoðun á stefnumótun stjórnskipulags. Hann hefur ennfremur þjálfað fjölda stjórna og framkvæmdastjóra til þess að gera þeim kleift að koma fram með sín eigin sjónarmið, gildi, samvinnu og framtíðaskipulag.
Hann hefur gefið út nokkrar bækur m.a. Coaching, Mentoring and Organizational Consultancy: Supervision and Development ásamt Nick Smith og Supervision in the Helping Professions ásamt Robin Shohe með framlagi frá. Judy Ryde og Joan Wilmot.
Hverjum er kennslan ætluð ?
Þetta Master Class námskeið er ætlað fagfólki í meðferðarvinnu, menntavísindum, vinnuvernd, stjórnendum og öðrum þeim sem hafa áhuga á vinnuvernd sem og faglegum og vönduðum vinnubrögðum.Námskeiðið er haldið í samstarfi við Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd (RBF) og Félagsráðgjafafélag Íslands
Hér má finna nánari upplýsingar um faghandleiðslu www.handleidsla.is
Nánari upplýsingar um efnistök, verð og skráningu koma síðar
Takið daginn frá
Kær kveðja, María Rúnarsdóttir
formaður Félagsráðgjafafélags Íslands