Viðburðir

Nýjársfagnaður FS – janúar 2017

PT pub night – PT Pub Quiz

  • 27.1.2017, 19:30 - 23:00, Kex Hostel

Við fögnum nýju ári með hittingi eins og gert hefur verið undanfarin tvö ár. Víða erlendis hittast sjúkraþjálfarar á svokölluðum  PT pub nights. Við bætum um betur og höldum  PT Pub Quiz föstudagskvöldið 27. janúar 2017, kl 19:30 á Kex Hosteli, í sal sem nefnist „Gym & Tonic“. Þetta er sami salur og við héldum nýjársfagnaðinn í byrjun þessa árs.

Nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar.

Veitingar verða í boði félagsins í upphafi og á meðan birgðir endast, eftir það er barinn opinn.
Tilvalið er fyrir hópa og vinnustaði að hittast á undan og borða saman.

Við vonum að sem flestir sjúkraþjálfarar sjái sér fært að koma og fagna saman nýju ári.

Stjórnin

Athugið breytta dagsetningu frá fyrri auglýsingu, en upphaflega var áætlað að halda viðburðinn þann 20. janúar. Því þurfti að breyta vegna óviðráðanlegra ástæðna.