07.06 2011

„Að brúka bekki“ 2011

Nýjar gönguleiðir á Akureyri

Nú hafa verið settar upp almenningabekkir á seinni tvær gönguleiðirnar í verkefninu „Að brúka bekki“, sem Norðurlandsdeild FÍSÞ, í samstarfi við Félag eldri borgara á Akureyri, standa að.

Þessar tvær nýju leiðir eru annars vegar út frá fjölbýlishúsunum við Mýrarveg, og eru á þeirri leið bekkir í Víðimýri, við mót göngustígs við Rauðumýri og á Mýrarvegi, gegnt Kaupangi. Hins vegar er gönguleið sem liggur upp frá Hlíð, um Suðurbyggð og er bekkur við enda Jörvabyggðar, við mót Jörvabyggðar og göngustígs, ofarlega við Álfabyggð og svo lokast hringurinn aftur við Hlíð. Kjörið er fyrir íbúa við Skálateig að koma inn á leiðina um göngustíginn við enda Jörvabyggðar.

Fyrri gönguleiðinar tvær, sem settar voru upp síðsumars á síðasta ári eru út frá fjölbýlishúsunum við Lindarsíðu og Víðilund.

Sjúkraþjálfarar á Akureyri eru hvattir til að benda fólk á að nýta sér bekkina, drífa sig út að ganga sér til heilsubótar og láta það ekki aftra sér þótt göngugetan sé takmörkuð. Það er stutt í næsta bekk!

Stjórn N-FÍSÞ

 

 

 





Til baka