04.10 2011

Að brúka bekki í Norðurþingi

Sjúkraþjálfarar í samstarfi við eldri borgara í Norðurþingi fóru af stað með samfélagsverkefnið „Að brúka bekki“  í mars 2011. 27. september sl. voru 16 almenningsbekkir vígðir.

 

Leitað var til einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka í Norðurþingi og þau beðin um styrk til kaupa á bekkjum auk annarrar aðstoðar við verkefnið. Undirtektir voru með eindæmum góðar. Alls hafa 16 bekkir nú verið keyptir og þeim verið komið fyrir víðs vegar í sveitarfélaginu. Tvær ákveðnar gönguleiðir voru skipulagðar og eins var bekkjum komið fyrir á fjölförnum leiðum þar sem þörf þótti á. Tveir bekkir fóru á Kópasker og Raufarhöfn en verkefnið er enn í gangi þar.

Fjölmargir aðilar hafa lagt verkefninu lið með öðrum hætti en beinum fjárframlögum s.s. með að gefa vinnuframlag sitt við einstaka þætti verkefnisins. Þannig sáu Landflutningar um flutning bekkjanna, Norðurþing sá um uppsetningu bekkjanna og mun sjá um að gönguleiðir verði greiðfærar yfir veturinn. Einar Kolbeinsson gaf skilti á bekkina auk vinnu við uppsetningu þeirra. Hver bekkur er merktur helstu styrktaraðilum. Einar Gíslason hjá Húsavíkurstofu mun útbúa göngukort þar sem staðsetning bekkjanna kemur fram og hugmyndir að tveimur gönguleiðum. Kortið verður birt í Skránni, auglýsingamiðli Norðurþings og á vef Norðurþings.

Sjúkraþjálfarar vilja þakka þeim fjölmörgu einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum sem að verkefninu komu fyrir frábærar undirtektir og mikla jákvæðni. Sérstakar þakkir fá starfsstúlkur Sjúkraþjálfunar Húsavíkur fyrir ómælda vinnu við öflun styrkja. Öll fjárframlög, stór og smá, nýttust til fullnustu og má sjá lista yfir alla styrktaraðila á vef Norðurþings. Bæjarbúar eru kvattir til að kynna sér staðsetningu bekkjanna og þær gönguleiðir sem hægt er að fara og láta takmarkaða göngugetu ekki hindra sig.

Sjúkraþjálfarar í Norðurþingi.

http://640.is/news/samfelagsverkefnid__ad_bruka_bekki__gekk_mjog_vel/

 





Til baka