Alþjóðleg ráðstefna í Basic Body Awareness Therapy (BBAT)
8.-12. ágúst á Íslandi
Alþjóðleg ráðstefna sjúkraþjálfara og kennara í Basic Body Awareness Therapy (BBAT)
Verður haldin á Laugarvatni dagana 8.-12. ágúst n.k.
Mánudagskvöldið 8. ágúst verður ráðstefnan opin sjúkraþjálfurum hér á landi frá kl. 18:00 (nákvæmari tímasetning síðar). Áætlaður tími er 2-3 klst. Lágmarksþátttaka er 10 eða fleiri svo nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til Önnu Stínu á netfang: annakk@seylan.is eða GSM: 891 8909 eigi síðar en 16. júlí.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér þá aðferð í sálvefrænni nálgun í sjúkraþjálfun sem er hvað mest rannsökuð í dag.
Heiti á fræðsluefni sem verður á dagskrá:
BBAT presentation of a psychosomatic modality and how it is applied in physiotherapy.
Fyrirlesari: Anne Parker yfirsjúkraþjálfari Royal Edinburgh Hospital Scotland. Anne er einn helsti skipuleggjandi alþjóðlegu ráðstefnunnar í Physiotherapy in Psychiatry and Mental Health, sem verður haldin í Edinborg á næsta ári.
The Evidence-basis for BBAT – some examples.
Fyrirlesari: Dr. Amanda Lundvik Gyllensten. Hún kennir og gerir rannsóknir á aðferðinni við sjúkraþjálfunardeildina í Lundarháskóla Svíþjóð og hefur iðkað BBAT í rúm 30 ár. Hún hefur skrifað fjölda greina sem hafa m.a. verið birtar í vísindatímaritunum: Scandinavian Journal of Caring Sciences, Physiotherapy Research International ogAdvances in Physiotherapy.
Til baka