Alþjóðleg ráðstefna um nýsköpun
Hörpu 7.-8. september
Samtök frumkvöðlakvenna munu halda alþjóðlega ráðstefnu í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu 7-8 september næstkomandi. Ráðstefnan átti að vera í vor en var frestað vegna eldgossins.
Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á uppfinninga- og frumkvöðlastarfsemi kvenna og vonast er til að það muni stuðla að betri tækifærum kvenna og auka áhugann á málefninu. Karlar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta og taka þátt og kynna sér hvað konur eru að finna upp, víðs vegar í heiminu. Gert ráð fyrir að minnsta kosti 300 manns víðsvegar að úr heiminum.
Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands er verndari ráðstefnunnar.
Ráðstefnan í Hörpu verður fjölmennasta samkoma frumkvöðlakvenna í Evrópu á þessu ári. Það verða fluttir fyrirlestrar þar sem m.a. verður fjallað um hugverkaréttindi, vöruþróun, stofnun fyrirtækja, fjárfestingar, markaðsvæðingu og upplýsingatækni. Tölfræðin sýnir að konur fá 20% af styrkjum sem í boði eru á Íslandi og fá lægri styrk upphæðir. Konur eiga 9% af skráðum einkaleyfum í Evrópu. Konur eiga 20% af fyrirtækjum á Íslandi. Konur eiga 5-15% af tæknifyrirtækjum í Evrópu. Þessar tölur sýna að mikil þörf er á að hvetja konur áfram og að gera þær konur sýnilegar sem framkvæma hugmyndir sínar.
Félag kvenna í nýsköpun, KVENN, var stofnað árið 2007. Þá komu saman konur sem fengust við nýsköpun á ýmsum sviðum, sumar höfðu fengið alþjóðlegar viðurkenningar og tekið þátt í Nýsköpunarkeppnum og aðrar voru búnar að stofna fyrirtæki um hugmyndir sínar. Það er íslenska tengslanetið KVENN sem ber hitann og þungann af skipulagi þingsins að þessu sinni en félagið á aðild að evrópska tengslanetinu EUWIIN og GWIIN, alþjóðlegu tengslaneti frumkvöðlakvenna, sem teygir anga sína til Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.
Fjölmennar ráðstefnur EUWIIN, í Berlín 2007 og síðan Helsinki 2009 sýndu, svo ekki varð um villst, að mikil þörf var á tengslaneti á borð við þau sem hér um ræðir enda þykja þau hafa skapað frjóan jarðveg og vettvang fyrir skapandi og hugmyndaauðugar konur.
Nánari upplýsingar
Sjá meðfylgjandi skjöl. Allar nánari upplýsingar veitir Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður Félags kvenna í nýsköpun, í síma 898 4661. Netfang: elinoras@gmail.com. Upplýsingar og skráning er á www.kvenn.net
Skjöl
AuglýsingDagskrá
Til baka