12.07 2011

Basic Body Awareness Therapy (BBAT)

8. ágúst

Alþjóðleg ráðstefna sjúkraþjálfara og kennara í Basic Body Awareness Therapy (BBAT)verður haldin á Laugarvatni dagana 8.-12. ágúst n.k. Mánudagskvöldið8. ágúst verður ráðstefnan opin sjúkraþjálfurum hér á landi. Hægt verður að panta sér kvöldverð á staðnum sem verður kl. 17:30 og kl. 18:30 hefst kynningin á BBAT.

 Áætlaður tími er 2 klst. Lágmarksþátttaka er 10 eða fleiri  svo nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til Önnu Stínu á netfang: annakk@seylan.is eða GSM: 891 8909 eigi síðar en          16. júlí

Ókeypis er á fyrirlestrana

Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér þá aðferð í sálvefrænni nálgun í sjúkraþjálfun sem er hvað mest rannsökuð í dag.

 

Heiti á fræðsluefni sem verður á dagskrá:

  1. BBAT presentation of a psychosomatic modality and how it is applied in physiotherapy.                                                                                                           Fyrirlesari: Anne Parker yfirsjúkraþjálfari  Royal Edinburgh Hospital Scotland. Anne er einn helsti skipuleggjandi alþjóðlegu ráðstefnunnar í  Physiotherapy in Psychiatry and Mental Health, sem verður haldin í Edinborg á næsta ári.
  2. The Evidence-basis for BBAT – some examples.                                                 Fyrirlesari: Dr. Amanda Lundvik Gyllensten. Hún kennir og gerir rannsóknir á aðferðinni við sjúkraþjálfunardeildina í Lundarháskóla Svíþjóð og hefur iðkað BBAT í rúm 30 ár.  Hún hefur skrifað fjölda greina sem hafa m.a. verið birtar í vísindatímaritunum: Scandinavian Journal of Caring Sciences, Physiotherapy Research International  ogAdvances in Physiotherapy.




Til baka