26.05 2011

Brúkum bekki í Garðabæ

Þriðjudaginn 24. maí var vígð ný gönguleið í Garðabæ, sem gerir það að verkum að nú er vörðuð leið með bekkjum góðan hring frá Jónshúsi, félagsmiðstöð eldri borgara, með viðkomu í verslun. Er þá búið að koma niður 10 bekkjum í Garðabæ í sambandi við verkefnið "Brúkum bekki í Garðabæ". Meðfylgjandi er mynd af einum af nýju bekkjunum, sem var gjöf frá Kvenfélagi Garðabæjar. FÍSÞ og FSÖ þakka Garðabæ og öllum gefendum kærlega fyrir með von um að bekkirnir nýtist sem flestum. Á myndinni sjást Erla Bil, garðyrkjustjóri, Héðinn formaður, Kári íþróttafulltrúi, Jóna formaður Kvenfélagsins og Guðfinna formaður FSÖ.





Til baka