24.05 2011

Eftirlit með lækningatækjum

Landlæknisembættið vill benda á að 1. maí sl. var eftirlit með lækningatækjum flutt frá embættinu til Lyfjastofnunar. Gegnir nú Lyfjastofnun hlutverki lögbærs yfirvalds með lækningatækjum á Íslandi. Þeim sem málið varðar er bent á að senda erindi sem tengjast lækningatækjum á netfangið laekningataeki@lyfjastofnun.is. Bent er jafnframt á að einnig er netfang sem auðveldara er fyrir erlenda aðila að nota sem er medicaldevices@ima.is

Breyting þessi var gerð með lögum nr. 28/2011 um breytingu á lögum nr. 41/2007 um landækni sem jafnframt fól í sér breytingu á lögum nr. 16/2001 um lækningatæki.





Til baka