21.02 2012
Til baka
Ertu orðin/n leið/ur á því að tala um veðrið?
Þá er námskeið í áhugahvetjandi samtali eitthvað fyrir þig
Fræðslunefnd býður upp á afar spennandi námskeið í áhugahvetjandi samtali (Motivational Interviewing).
Áhugahvetjandi samtal er áhrifarík leið til að virkja áhugahvöt skjólstæðingsins til hegðunarbreytinga í þágu hans eigin heilsu.
Segja má að áhugahvetjandi samtal byggist á því að leiðbeina frekar en að stjórna samtalinu, að „dansa saman“ frekar en að glíma við andstæðing, að hlusta frekar en að tala.
sjá hér
Til baka