Evrópuráðstefna um hugræna atferlismeðferð
Vakin er athygli ykkar á Evrópuráðstefnu um hugræna atferlismeðferð sem haldin verður í Hörpunni dagana 31. ágúst til 3. sept. nk. Þar munu fjölmargir af færustu meðferðaraðilum heims kynna nýjustu áherslur í meðferð og rannsóknarniðurstöður. Unnt er að sækja ráðstefnuna í heild sinni eða aðeins einn dag og taka staka vinnustofu. Meðal annars má finna vinnustofu Lindu Craighead um meðhöndlun ofþyngdar, Mörshu Linehan um tilfinningastjórnun, Pauls Salkovsis um heilsukvíða og meðal fimmtán aðalfyrirlestra má meðal annars nefna fyrirlestur Torkils Berge um hvernig stuðla endurkomu fólks með geðraskanir á vinnumarkað og Pim Cuijpers um hvernig megi fyrirbyggja þunglyndi.
Upplýsingar um ráðstefnuna má finna á www.congress.is/eabct/ en þar fer skráning jafnframt fram. Lægsta gjald á ráðstefnuna gildir til 1. ágúst nk.
Til baka