Evrópuráðstefna um hugræna atferlismeðferð
Hörpunni dagana 31. ágúst til 3. sept.
Vakin er athygli ykkar á Evrópuráðstefnu um hugræna atferlismeðferð sem haldin verður í Hörpunni dagana 31. ágúst til 3. sept. nk. Skráning hefur verið mjög góð og eru ríflega 1100 manns skráðir á ráðstefnuna. Það stefnir því allt í að þetta verði með fjölmennari Evrópuráðstefnum á þessu sviði.
Á ráðstefnunni munu fjölmargir af færustu meðferðaraðilum heims kynna nýjustu áherslur í meðferð og rannsóknarniðurstöður. Meðal annars má finna vinnustofu Mörshu Linehan um tilfinningastjórnun, Pauls Salkovsis um heilsukvíða og meðal fimmtán aðalfyrirlestra má meðal annars nefna fyrirlestur Torkils Berge um hvernig stuðla endurkomu fólks með geðraskanir á vinnumarkað og Pim Cuijpers um hvernig megi fyrirbyggja þunglyndi.
Ráðstefnan hefst með glæsilegri opnunarhátíð í Hörpunni, þar sem flutt verða tónlistaratriði og ávörp dr. Eiríks Arnar Arnarsonar forseta ráðstefnunnar, forseta Íslands og dr. David Clark sálfræðings um þróun og miðlun skilvirkra sálfræðimeðferða. Daginn eftir er móttaka á vegum Borgarstjórnar og Gala kvöldverður haldinn á föstudeginum í Perlunni sem endar með dansleik með Millunum. Á lokahófi ráðstefnunnar mun dr. Tom Ollendick flytja erindi um forvarnir og meðhöndlun geðraskana ungmenna og fjalla um stöðu lyfjameðferða auk sálfræðimeðferða.
Til að gefa sem flestum kost á að sækja ráðstefnuna hefur verið tekin ákvörðun um að bjóða ódýrasta skráningargjaldið fram að ráðstefnu. Skráning á ráðstefnuna fer fram á http://www.congress.is/eabct/ en þar má jafnframt sjá dagskrá ráðstefnunnar. Meðlimir í Félagi um hugræna atferlismeðferð fá ráðstefnuna á sérstökum kjörum og fer skráning í félagið fram á www.ham.is. Fyrir þá sem aðeins vilja mæta á hluta ráðstefnunnar er unnt að kaupa dagspassa.
Til baka