01.11 2011
Til baka
Fræðslufundur faghóps um barnasjúkraþjálfun
9. nóv.
Faghópurinn mun standa fyrir umræðu- og fræðslufundi um öryggismál fatlaðra í bíl, miðvikudaginn 9.nóvember kl.11.00-12.00.
Fjallað verður um festingar á hjólastólum og kerrum í bíla ásamt notkun á öryggisbeltum og höfuðpúðum.
Á fundinn koma með innlegg í umræður : Sigurður Helgason frá Umferðarstofu, Inga Jónsdóttir frá Hjálpartækjamiðstöð
og Halldór frá Ferðaþjónustu fatlaðra.
Fundarstaður : Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13, 4 hæð.
Fundartími : Miðvikudagurinn 9.nóvember kl. 11.00-12.00
Vonumst til að sjá sem flesta í umræður og spurningar varðandi þetta mikilvæga mál.
Til baka