Fræðslukvöld um stöðu fagstétta á vinnumarkaði og réttindi tengd aðild að fag- og stéttarfélögum
miðvikudaginn 23. nóv., kl. 19:30
Í fræðsluerindinu verður farið yfir:
Hvað eru fag-/stéttarfélög, hverjir geta verið í þeim, hvaða hag hefur fólk af aðild?
Staða fólks á vinnumarkaði innan og utan stéttarfélaga, réttindi (t.d. samningsréttur, réttindi tengd aðild s.s. í sjóðum), hvert er landslag stéttarfélaga á íslenskum vinnumarkaði (almennum jafnt sem opinberum).
Munurinn á almennum og opinberum vinnumarkaði, stöðu launafólks og verktaka. Geta allir þessir aðilar átt sameiginlega hagsmuni?
Viðhorf og væntingar fólks á almennum vinnumarkaði til stéttarfélaga.
Hvað styrkir/veikir félagslega stöðu stétta á vinnumarkaði frá sjónarhorni stöðu innan eða utan félaga.
Hvað sameinar/aðskilur hagsmuni fólks með ólíka stöðu á vinnumarkaði, þ.e. launþega, verktaka, fólks með eigin rekstur?
Einkenni sterkra félaga og veikra félaga, tækifæri og ógnir.
Hlutverk ólíkra félaga.
Frlæðslufundurinn verður haldinn miðvikudaginn 23. nóv. 2011, kl. 19:30, húsnæði ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, Sal E
Fundurinn verður sendur út í streymi. Tengil á fundinn verður að finna á: http://www.physio.is/namskeid/fraedslukvold_um_stodu_fagstetta_a_vinnumarkadi_og_rettindi_tengd_adild_ad/
Fyrirlesarar: Páll Halldórsson og Ársæll Baldursson
Til baka