07.06 2011

Fyrirhugað námskeið og nám í dáleiðslu fyrir fagfólk

Dáleiðslufélag Íslands hefur ákveðið að koma á laggirnar námi í dáleiðslu. Með þessu bréfi viljum við kanna áhuga íslenskra heilbrigðisstétta á að tileinka sér dáleiðslu sem hluta af sinni meðferðarvinnu.   

Efnt verður til samvinnu við virta breska stofnun, Hypnosis Unit UK www.hypnosisunituk.comum námið. Um er að ræða stofnun sem starfar á akademískum grunni, þjálfar einungis þá sem hafa löggildingu í heilbrigðisfagi og nýtur viðurkenningar breskra fagfélaga og alþjóðasamtaka um dáleiðslu (ISH).

Stefnt er að því að námið geti hafist árið 2012 en það fer nokkuð eftir væntanlegri þátttöku. Námið er alls 84 kennslustundir auk handleiðslu, verkefnavinnu og lesturs. Það skiptist í þrjú stig en lýkur (ef allt er tekið) með formlegri viðurkenningu. Gert er ráð fyrir nokkurri sérhæfingu eftir mismunandi viðfangsefnum starfsstétta. Þá viðurkenningu sem fengist að námi loknu væri hægt að nota til þess að auðkenna þá sem hefðu lokið formlegri og viðurkenndri þjálfun.

Til þess að hefja þessa vegferð verður þann 28. október 2011, á „Degi dáleiðslunnar“ eins dags námskeið „Inngangur að dáleiðslu“ í umsjón kennara frá Hypnosis Unit UK. Nánari lýsing fylgir hér á eftir. Þar verður fyrirkomulag fyrirhugaðs nám kynnt frekar.

Með þessu bréfi viljum við kanna áhuga á þessu námskeiði og frekara námi í dáleiðslu. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að senda okkur línu og tilgreina 1. hvort þeir hyggist sækja námskeiðið og 2. hvort þeir hafi áhuga fyrir náminu. Svörin berist til hordurth@lsh.iseða kolbrunragnars@simnet.is

Við teljum að hér sé einstakt tækifæri á ferð og hvetjum þig til þess að skoða vel hvort nám af þessi tagi styrki þig ekki í þeim verkefnum sem þú ert að sinna eða muni skapa ný tækifæri og aukna færni.

 

f.h. Dáleiðslufélags Íslands

Dr. Hörður Þorgilsson, formaður

 

 

 

Inngangur að dáleiðslu

 

The Introductory course can be regarded as a ‘taster course’ and  introduces participants to the theory and practice of clinical and applied hypnosis, covering the following topics:
 
·         The nature of hypnosis and self-hypnosis including reference to the measurement of hypnotic      susceptibility
·         Reference to clinical and experimental hypnosis research
·         An overview of the range of applications of hypnosis
·         The use of hypnotic techniques in managing anxiety
·         Reference to using hypnosis with children
·         Learning how to structure a hypnotic procedure
·         Case scenarios
·         Experiences of hypnosis
·         Practicals

Learning outcomes - by the end of the day participants will:
·         Be able to use a basic hypnotic anxiety control technique with their clients / patients
·         Be able to use a basic self-hypnosis technique to manage their own stress
·         Be able to understand the nature of hypnosis and self-hypnosis
·         Have an awareness of the possible applications of hypnosis






Til baka