27.09 2011
Til baka
Fyrrverandi formaður fallinn frá
Fyrrverandi formaður FÍSÞ, Sigríður S. Gísladóttir, lést 15. september. Jarðarförin fór fram 23. september í Fossvogskirkju.
Sigríður var formaður FÍSÞ á árunum 1968-1979 og gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum fyrir félagið. Félagsmenn þakka Sigríði fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Þau leiðu mistök urðu að fáni félagsins var ekki hafður uppi við athöfnina og biður undirritaður hlutaðeigandi innilegrar afsökunar á því.
Héðinn Jónsson, formaður FÍSÞ
Til baka