Fyrsta ráðstefna Special Olympics á Íslandi
laugardaginn 25. febrúar 2012
Markmið ráðstefnunnar er að kynna þau tækifæri sem hafa skapast með aðild Íslands að Special Olympics International. http://www.specialolympics.org<http://www.specialolympics.org/>
Einnig að vekja athygli á gildi þess að valkostir séu til staðar, jafnt á sviði íþrótta og tómstunda sem á öðrum sviðum. Allir keppa við sína jafningja á þessum leikum og engin lágmörk þarf til.
Meginþema er innlegg frá iðkendum, þjálfurum og aðstandendum sem segja frá lýsa eigin upplifun og reynslu af því að taka þátt í alþjóðaleikum Special Olympics. Þeir sem taka þátt í slíku verkefni þurfa að takast á við margvíslegar nýjar áskoranir og á ráðstefnunni miðla þeir af eigin reynslu.
Skráning á ráðstefnuna er á heimasíðu ÍF http://www.ifsport.is<http://www.ifsport.is/> og í dagskrá hér að neðan.
Skjöl
DagskráTil baka