Golfmót sjúkraþjálfara
Golfmót sjúkraþjálfara var haldið á Setbergsvelli föstudaginn 10. júní sl. Alls tóku 35 manns þátt í mótinu.
Veitt voru nándarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins og gerði Oddný Sigsteinsdóttir sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 5. braut. Aðrir sem fengu nándarverðlaun voru þau Rannveig Laxdal Sjúkraþjálfun Reykjavíkur á 2. braut, 2,23 m., Þórir Ingólfsson Afl sjúkraþjálfun á 14. braut, 2.42 m., Harpa Sigurðardóttir LSH á 11. braut, 3.86 m. og á 8. braut Hulda Soffía Hermannsdóttir Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði 3.43 m.
Úrslit mótsins voru síðan sem hér segir:
Besta skor hafði Daði Laxdal starfsmaður á plani í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur, 74 högg (38 punktar), en ekki er bæði hægt að vinna verðlaun fyrir besta skor og punktakeppni.
Í karlaflokki var efstur í punktakeppni Gunnar Svanbergsson Eflingu Akureyri á 34 pt, í öðru sæti Haraldur Sæmundsson Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði á 33 pt og í þriðja sæti var Gauti Grétarsson Sjúkraþjálfun Reykjavíkur á 32 pt.
Í kvennaflokki var efst Hulda Hermannsdóttir Sjúkraþjálfaranum á 36 pt, í öðru sæti var Anna Úrsula Gunnarsdóttir Sjúkraþjálfun Íslands á 35 pt og í þriðja sæti var Jórunn Hafsteinsdóttir á 33 pt.
Þau sem voru í efstu sætunum fengu öll gjafabréf frá Hole in One ásamt verðlaunapening, golfmeistari sjúkraþjálfara í karla og kvennaflokki fékk þar að auki farandgrip til varðveislu.
Í liðakeppninni varð efst lið Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og fengu þau veglega ostakörfu í verðlaun ásamt verðlaunagrip.
Í lok mótsins var síðan dregið úr skorkortum og líklega hafa allir viðstaddir fengið einhvern vinning. Nokkrar sjúkraþjálfarastofur styrktu mótið, þar má nefna Stjá, MT stofuna, Sjúkraþjálfun Kópavogs, Sjúkraþjálfarann. Einnig fengum við styrk frá FÍSÞ og FSSS.
Við í undirbúningsnefdninni þökkum ykkur fyrir þátttökuna og vonum að við sjáum enn fleiri þátttakendur á næsta ári.
Til baka