24.05 2011

Hreyfing sem meðferðarform - Málþing á Reykjalundi

Föstudaginn 13. maí var haldið málþing á Reykjalundi, endurhæfingarmiðstöð SÍBS, Mosfellsbæ.  Að málþinginu stóðu félag íslenskra sjúkraþjálfara, félag íslenskra heimilislækna, félag íslenskra endurhæfingarlækna  og  Lýðheilsustöð með stuðningi fræðslumiðstöðvar Læknafélags Íslands.

Málþingið bar heitið „Hreyfing sem meðferðarform“. Rannsóknir hafa sýnt að skipulögð hreyfing er öflugt meðferðarform ýmissa krónískra sjúkdóma.  Málþingið var ætlað fagfólki sem starfar við meðhöndlun sjúklinga.  Alls sóttu um 220 manns þingið á Reykjalundi,  en staðsetningin þótti tilhlýðileg þar sem Reykjalundur hefur markvisst notað hreyfingu sem lið í endurhæfingu allt frá opnun hans.  Málþingið var sent út til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar  þar sem við bættust um 40 manns. Málþingið tókst í alla staði mjög vel, gerður var góður rómur af fyrirlesurum, tæknimál gengu eins og best var á kosið og allir ánægðir í lok dags. 

Niðurstöður sem dregnar voru saman í lokin voru að nauðsynlegt væri að stuðla frekar að því að auka vægi hreyfingar sem meðferðarforms innan íslenska heilbrigðiskerfisins. Nauðsynlegt væri að stjórnvöld kæmu þarna að málum og styddu við kerfi hreyfiseðla og kostuðu þar með samhæfingaraðila svo það kerfi yrði starfhæft.





Til baka