30.01 2012

Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

Laugardaginn 11.febrúar

Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ,
standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun
laugardaginn 11.febrúar 2012 kl. 10.00 – 16.00.

Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun.  
Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics
og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun.

Markhópur ráðstefnu eru þeir  sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa

10.00 – 12.00  Félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ

10.00 – 10.15      Kynning á verkefnum starfshóps um þessi mál og  dagskrá námskeiðs 
Anna K Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF
10.15. – 10.35.    Kynning á sjúkraþjálfun á hestbaki  
  Guðbjörg Eggertsdóttir og Þorbjörg Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfarar Æfingastöðvar SLF    
10.35. -  11.00.    Kynning á starfi fyrir fatlaða innan Hestamannafélagsins Harðar  
Auður Sigurðardóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra
    Kynning á leiðtoganámskeiðum 
Þórhildur Þórhallsdóttir, Hestamennt
11.00 – 11.20.      Kynning á knapamerkjakerfi.                                             
Sigrún Sigurðardóttir, reiðkennari
11.20. –11.40.     Kynning á hlutverki hestsins & félagslegur þáttur             
Ásta Pétursdóttir, geðhjúkrunarfræðingur
11.40. – 12.00.    Spurningar og umræður
12.00 – 13.00       Hádegisverður

13.00 – 15.000     Reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar 

Sjúkraþjálfun á hestbaki      Stutt kynning
Kynning á keppnisfyrirkomulagi  Helstu atriði kynnt
15.00  – 16.00       Lok námskeiðs og samantekt

Þátttökugjald er kr. 3.000. -   Innifalið er hádegisverður og kaffi.

Vinsamlega staðfestið skráningu fyrir þriðjudag 7 febrúar 2012 í netfang;
annak@isisport.is   Íþróttasamband fatlaðra
audurs@gmail.com Hestamannafélagið Hörður





Til baka