Jafnrétti, fötlun og háskólanám
14. október
Málþing á vegum Rannsóknarseturs í fötlunarfræði og Ráðs um málefni fatlaðs fólks í tilefni Jafnréttisdagar HÍ
Föstudaginn 14. október 2011 kl. 14-16 í Hátíðarsal Aðalbyggingar
Í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands standa Ráð um málefni fatlaðs fólks og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum fyrir málþinginu Jafnrétti, fötlun og háskólanám á Jafnréttisdögum HÍ. Aðalfyrirlesari er norska fræðikonan Eva Magnus sem segir frá niðurstöðum doktorsrannsóknar sinnar um daglegt líf og reynslu fatlaðra háskólanema í Noregi. Einnig verður greint frá fyrstu niðurstöðum úr öðrum áfanga rannsóknarinnar Jafnrétti til náms: Réttur og raunveruleiki fatlaðra nemenda við Háskóla Íslands Þá munu tveir fatlaðir nemendur við HÍ segja frá reynslu sinni og fulltrúi Náms og starfsráðgjafar HÍ kynnir fræðsluefnið Dare 2 fyrir starfsfólk HÍ um fötlun og háskólanám
Til baka