Meistaranám í hreyfivísindum
Umsóknarfrestur rennur út 15. október
Umsóknarfrestur vegna náms á vormisseri 2012 rennur út þann 15. október, 2011.
Námsbraut í sjúkraþjálfun, læknadeild, HÍ býður upp á nám til meistaragráðu (MSc) í hreyfivísindum mannsins.
Námið er ætlað sjúkraþjálfurum og öðrum sem lokið hafa BSc gráðu eða sambærilegu námi á sviði sem tengist hreyfivísindum. Ef um fullt nám er að ræða er reiknað með að námstíminn sé 2 ár, en einnig er boðið upp á hlutanám með vinnu sem getur tekið 3-4 ár.
Námið er 120 ECTS einingar og samanstendur af 60 einingum í námskeiðum og 60 eininga rannsóknaverkefni.
Í náminu er m.a. lögð áhersla á hreyfistjórn, hreyfinám, hreyfigreiningu, forvarnir og aðferðafræði rannsókna. Með mismunandi valnámskeiðum og verkefnum má tengja þessa þætti inn á mörg svið, svo sem frávik frá hreyfifærni, fötlun, heilsueflingu, hreyfingu, endurhæfingu, íþróttameiðsli, forvarnir, o.fl.
Helstu námskeið eru:
Skyldunámskeið:
- Almenn tölfræði fyrir meistara- og doktorsnema (6 ECTS)
- Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema (6 ECTS)
- Hreyfistjórn (8 ECTS)
- Lífaflfræði stoðkerfis og mekaniskir eiginleikar vefja (8 ECTS)
- Gerð rannsóknaráætlunar (4 ECTS)
Valnámskeið innan Læknadeildar:
- Tölfræðivinnsla í tölvum (4 ECTS)
- Lífeðlisfræðilegar mælingar og þjálfun (8 ECTS)
- Lesnámskeið í hreyfingafræði (6 ECTS)
- Íþróttir, sjúkdómar og lyf (8 ECTS)
- Íþróttasjúkraþjálfun – Áhættuþættir, meiðsli og forvarnir (10 ECTS)
Dæmi um valnámskeið úr öðrum deildum/sviðum:
Faraldsfræði hreyfingar, eigindlegar rannsóknaraðferðir, þjálfunarlífeðlisfræði, fötlunarfræði, þjálfun og næring o.fl.
Auk þess er hægt að velja námskeið á MSc stigi frá öðrum námsbrautum eða deildum innan Háskóla Íslands, enda dýpki það þekkingu nemans á rannsóknarsviði hans. Námskeið á vegum FÍSÞ sem neminn hyggst sækja má meta til eininga uppfylli það kröfur HÍ, sem og námskeið á MSc stigi frá öðrum Háskólum, en slíkt er skoðað í hverju tilfelli fyrir sig og ákveðið hvernig námsmati skuli hagað.
Nánari upplýsingar um námið veita:
Árni Árnason, dósent María Þorsteinsdóttir, dósent Kristín Briem, lektor
Sími: 525 4007 Sími: 525 4005 Sími: 525 4096
Netfang: arnarna@hi.is Netfang: mth@hi.is Netfang: kbriem@hi.is
Til baka