Námskeið á vegum EHÍ
Öldrunarfræði: Stefnumótun og þjónusta (ÖLD102F)
Í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Markmið námskeiðsins er að kynna öldrunarfræði sem þverfaglega fræðigrein með aðaláherslu á félagslega öldrunarfræði. Hugmyndafræði fræðigreinarinnar, helstu rannsóknir og rannsóknaraðferðir verða kynntar.
Umsjón: Sigurveig H. Sigurðardóttir, dósent við HÍ.
Skráningarfrestur er til 17. október 2011.
Á námskeiðinu verður gefið yfirlit um algengi, greiningu og orsakir heilaskaða. Rætt verður um hvernig heilinn sem stjórnstöð líkamans m.a. stýrir hreyfingu, hugsun, hegðun og tilfinningum og hvernig mismunandi einkenni fólks með heilaskaða koma fram. Námskeiðið er ætlað fagfólki á heilbrigðissviði en er opið öllum áhugasömum.
Kennari: Ólöf H. Bjarnadóttir, endurhæfingar- og taugalæknir á tauga- og hæfingarsviði Reykjalundar
Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2011.
Til baka