Námskeið á vegum EHÍ
17. nóvember
Heilaskaði
Markmið námsskeiðs er að auka almenna þekkingu fagfólks á heilaskaða, kynna suma meðferðarmöguleika, benda á meðferðarúrræði og gefa ráðleggingar um hvernig stuðningur í þjóðfélaginu megi vera. Á námskeiðinu verður gefið yfirlit um algengi, greiningu og orsakir heilaskaða. Rætt verður um hvernig heilinn sem stjórnstöð líkamans m.a. stýrir hreyfingu, hugsun, hegðun og tilfinningum og hvernig mismunandi einkenni fólks með heilaskaða koma fram. Reynt verður að upplýsa um áhrif á fjölskyldur og aðstandendur. Námskeiðið er ætlað fagfólki á heilbrigðissviði en er opið öllum áhugasömum.
Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2011.
Kennarar:Ólöf H. Bjarnadóttir er endurhæfingar- og taugalæknir á tauga- og hæfingarsviði Reykjalundar síðan 1998. Ólöf útskrifaðist frá Læknadeild Háskóla Íslands 1985 og stundaði sérnám í Svíþjóð, 1989-1998 m.a. á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum. Smári Pálsson er taugasálfræðingur á tauga- og hæfingarsviði Reykjalundar síðan 2004, en fyrir það var hann á öldrunarsviði LSH og þar á undan við rannsóknir hjá Íslenskri Erfðagreiningu. Smári lauk B.A. prófi í sálfræði frá HÍ 1995 og Cand Psych í taugasálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2002. Ýmsir aðrir sérfræðingar munu einnig verða með erindi á námsskeiðinu.
Tími: Fim. 17. nóv. 2011 kl. 8:30 -16:00
Verð:15.900 kr.
Staður: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
Nánari upplýsingar og skráning hér
Til baka