03.01 2012

Námskeið í gagnaleit á netinu

Laugardagurinn 21. janúar

Norðurlandsdeild FÍSÞ stendur fyrir námskeiði i gagnaleit á netinu í samvinnu við HA. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum FÍSÞ.
Staður: Háskólinn á Akureyri, tölvustofa K203.
Stund: Laugardagurinn 21. janúar 2012 kl 9.30 – 13. (Ath. ef margir „langt-í-burtistar“ skrá sig, verður 28. janúar til vara ef veður gerast mjög válynd, svo haldið þeim degi fríum líka, ef mögulegt er).
Fyrirkomulag: Fyrirlestur (ca 2 klst). Farið verður yfir það hvernig leitarskipanir eru notaðar, og kynntir íslensku vefirnir gegnir.is og leitir.is, gagnagáttin hvar.is (og medical grunnarnir þar inn af), ásamt pedro.com (sjúkraþjálfunar-gagnagrunnur). Í lokin yrði heimildakerfið EndNote kynnt og hvernig maður notar slík kerfi til að halda utan um heimildir og gera heimildaskrár. Eftir hressingu (sjálfsalar á staðnum) yrði ca 1 klst þar sem farið er í verklegar æfingar á tölvur.
Kennari: Astrid Margrét Magnúsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur HA.

Kostnaður: 3.000 kr.
Skráning: Sendið póst á unnur@bjarg.is . Lágmarksþátttaka er 12 manns.
Tilgangur námskeiðsins er að gefa sjúkraþjálfurum kost á því að læra á gagnsöfnin á netinu, en rætt hefur verið um að sérstaklega eldri sjúkraþjálfarar, sem útskrifaðir eru fyrir netbyltingu, hafi takmarkaða þekkingu og þar með tækifæri til að nýta sér þann hafsjó upplýsinga sem hægt er að nálgast í gegnum gagnasöfnin. Námskeiðið er því sniðið að þeirra þörfum, en ætti samt að nýtast öllum, því mikil þróun á sér stöðugt stað og tilvalið fyrir yngri sjúkraþjálfara að rifja upp aðferðirnar og læra á það nýjasta.
Nánari námskeiðslýsing og upplýsingar um greiðslufyrirkomulag verður send á skráða þátttakendur þegar nær dregur.

Fh. stjórnar N-FÍSÞ
Unnur Pétursdóttir.





Til baka