Námsstefna um verkjameðferð
Dagana 16. og 17. mars
Dagana 16. og 17. mars verður haldin námsstefna um verkjameðferð á Reykjalundi.
Fyrri daginn verður farið í nokkur grundvallaratriði í verkjameðferð, fjallað um líkamlega, sálræna og félagslega þætti og þverfaglega nálgun. Auk þess verður sagt frá niðurstöðum rannsóknar þar sem yfir 100 sjúklingum verkjasviðs var fylgt eftir í 3 ár.
Seinni daginn verða vinnusmiðjur og þátttakendum gefast tækifæri á að dýpka skilning sinn og færni í meðferð þrálátra verkja. Mun hver og einn hafa möguleika á að taka þátt í fleiri en einni smiðju. Meðal þess sem tekið verður fyrir eru æfingar í laug, líkamsvitund, stafganga, félagsleg vandamál verkjasjúklinga, notkun mælitækja, og niðurtröppun sterkra verkjalyfja. Einnig verður farið í grundvallaratriði hugrænnar atferlismeðferðar, lífsstílsbreytingar og áhugahvöt.
Námsstefnan er ætluð læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, sálfræðingum, félagsráðgjöfum og öðru fagfólki sem í starfi sínu mætir einstaklingum með langvinna verki.
Hægt er að skrá sig á annan daginn eða báða. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Hámarksfjöldi þátttakenda á námsstefnunni er 60 (gildir fyrir seinni daginn). Námskeiðsgjald er
kr. 40.000.- fyrir báða dagana, kr. 27.000.- fyrir annan hvorn daginn. Innifalið eru námskeiðsgögn og næring. Umsóknafrestur er til 20. febrúar 2012. Umsóknir sendist á netfang berghildur@reykjalundur.is
Til baka