04.10 2011

Ráðstefna um D vítamín

21. október

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Dr. Michael Holick, læknir og vísindamaður við Boston háskóla, sem hefur rannsakað D vítamín sl. 30 ár.

Hann gaf út bók á sl. ári sem heitir „The Vitamin D Solution“ þar sem hann heldur því m.a. fram að D vítamínskortur sé orðinn að faraldri um allan heim í kjölfar aukinnar notkunar sólarvarna og minni neyslu á feitum fiski. Hann telur einnig að allt að 40-60% af vefjagigtar tilfellum séu í raun vangreindur D vítamín skortur og hefur náð miklum árangri í að koma vefjagigtarsjúklingum til hjálpar. Allir vita að D vítamín er nauðsynlegt fyrir beinin en rannsóknir Dr. Holick og annarra hafa leitt í ljós að D vítamín er í raun hormón sem hefur viðtaka í hverri einustu frumu líkamans og getur því skortur á þessu mikilvæga efni valdið ótal sjúkdómum s.s. krabbameini og hjartasjúkdómum.

 

Auk Dr Holick munu íslenskir fræðimenn sem standa framarlega í bæði rannsóknum á D vítamíni og meðferðum við D vítamín skorti halda erindi á ráðstefnunni, sjá dagskrá.

Skjöl

Dagskrá




Til baka