Ráðstefna um sjaldgæfa sjúkdóma
31. maí og 1. júní 2012 í Reykjavík
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og Velferðarráðuneytið
bjóða til ráðstefnu um sjaldgæfa sjúkdóma.
Skipulagning er í samvinnu við Rarelink og Einstök börn á Íslandi.
Ráðstefnan er ætluð öllum sem áhuga hafa á, vinna við eða
tengjast málefninu, svo og hagsmunasamtökum og
stjórnendum á sviði velferðarþjónustu á norðurlöndum.
Efni:
• Samvinna á sviði kennslu og rannsókna
• Styrkja heildstæða þjónustu á sviði sjaldgæfra sjúkdóma
• Efling norrænnar samvinnu
• Samþætta þekkingu og reynslu
• Eigin reynsla – tækifæri til að koma þinni reynslu og þekkingu á framfæri
Á ráðstefnunni verða yfirlitsfyrirlestrar, styttri erindi, málstofur og veggspjöld,
auk þess sem stofnanir og áhugasamtök fá tækifæri til að kynna sína starfsemi.
Við bjóðum þér að deila með öðrum niðurstöðum úr áhugaverðum
rannsóknum, þróunarverkefnum eða gagnlegri reynslu á sviði sjaldgæfra
sjúkdóma.
Kallað er eftir útdráttum (hámark 300 orð) í síðasta lagi 1. febrúar 2012.
Fyrirlestrar munu fara fram á ensku, en umræða gæti farið fram á ensku og
norrænum tungumálum.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á heimasíðu
Greiningarstöðvar, www.greining.is (þar er hnappur á skráningarsíðu)
Fyrirspurnir skal senda til: gudny@greining.is
Til baka