Stjórn Vísindasjóðs FÍSÞ auglýsir eftir umsóknum um styrki
Styrkjum úr Vísindasjóði verður úthlutað á Degi Sjúkraþjálfunar, þann 2. mars 2012. Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. janúar 2012. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem hægt er að finna á heimasíðu félagsins, physio.is (félagið-nefndir-vísindasjóður-skjöl). Þar er einnig að finna starfsreglur sjóðsins sem væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér. Markmið Vísindasjóðs er að styrkja rannsóknarverkefni, þróunarverkefni og viðamiklar ritsmíðar innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni/rannsóknir skulu hafa ótvírætt faglegt gildi innan sjúkraþjálfunar og vera faginu til framdráttar.
Einnig er minnt á að tekið er við umsóknum í Þýðingasjóð allt árið um kring. Markmið Þýðingasjóðs er að styrkja þýðingar á viðurkenndum
mælitækjum og spurningalistum innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni skulu hafa ótvírætt faglegt gildi og vera faginu til framdráttar.
Stjórn Vísindasjóðs hvetur alla sem eru að vinna eða hyggjast vinna verkefni sem uppfylla kröfur sjóðanna til að sækja um styrk. Umsækjendur skulu kynna sér starfsreglur sjóðanna og vanda umsóknir eins og kostur er. Ef ekki verður unnt að styrkja alla umsækjendur verður horft til gæða umsóknanna sjálfra ásamt með vísindalegu gildi þeirra fyrir sjúkraþjálfun.
Hægt er að senda umsóknir rafrænt á netfang nefndarmanna Vísindasjóðs eða á pappír á skrifstofu félagsins. Merkja skal að um umsókn í sjóðina sé að ræða.
Til baka