10.05 2011

Styrkjum úthlutað úr Vísindasjóði FÍSÞ

29. apríl

Fimm styrkjum var úthlutað úr Vísindasjóði FÍSÞ þann 29. apríl síðast liðinn.

Eftirfarandi rannsóknir og rannsakendur hlutu styrki:

Árný Lilja Árnadóttir hlaut 250.000 kr. styrk fyrir rannsókn sína:

Faraldsfræði meiðsla hjá íslenskum karlkylfingum. Tengsl líkamsástands og sveiflutækni; áhrif á golftengd meiðsli.

Gunnar Svanbergsson hlaut 250.000 kr. styrk fyrir rannsókn sína:

Brjósklos í lendarhrygg, samþætting á niðurstöðum úr segulómskoðun, við klíníska skoðun og meðferð.

Helena Magnúsdóttir hlaut  150.000 kr. styrk fyrir rannsókn sína:

Munur á vöðvavinnu við stökk og lendingu hjá stúlkum og drengjum. Er árangur af sérhæfðum styrktaræfingum?

Héðinn Jónsson hlaut 250.000 kr. styrk fyrir rannsókn sína:

Meðhöndlun langvinnra verkja á verkjasviði Reykjalundar. Kostnaðar-virknigreining.

Þróunarverkefnið “Hreyfiseðill” og verkefnastjóri þess, Héðinn Jónsson hlutu 150.000 kr. styrk.

 

Stjórn Vísindasjóðs óskar styrkþegum innilega til hamingju með styrkina.





Til baka