29.09 2011

Þverfagleg meðferð og eftirmeðferð sjúklinga sem liggja á gjörgæslu

7. október

Áhrif á endurheimt lífsþróttar

Þetta námskeið er ætlað heilbrigðisstarfsmönnum sem annast sjúklinga á gjörgæslu og eftirmeðferð eftir legu á gjörgæslu.

Á þessu þverfaglega námskeiði verður eftirtalið efni til umfjöllunar: Sjúklingar sem eru tvo sólarhringa eða lengur í öndunarvél, helstu sjúklingahópar og læknismeðferð. Öndun í vél og aðferðir við að venja af öndunarvél. Hjúkrun á gjörgæslu og reynsla sjúklinga af legu á gjörgæslu. Heilsa og líðan sjúklinga eftir útskrift þeirra af gjörgæslu. Áhrif bráðra, alvarlegra veikinda og legu á gjörgæslu á heilsu og líðan þeirra sem þar hafa legið. Líkamlegir, sálrænir og félagslegir þættir, stuðningur við sjúklingahópinn og aðstandendur þeirra. Sjúkraþjálfun sjúklinga á gjörgæslu. Þáttur sjúkraþjálfara í að venja sjúkling af öndunarvél. Skaðleg áhrif rúmlegu og mikilvægi hreyfingar á gjörgæslu. Endurhæfing eftir langa legu á gjörgæslu. Mat og þjálfun öndunarvöðva.


Leitast verður við að svara eftirtöldum spurningum:

  • Hverjir eru lengur en 48 klst. á gjörgæslu í öndunarvél?
  • Hvaða meðferð fá þeir auk öndunarvélar? ( læknis-, hjúkrunar- og sjúkraþjálfarameðferð).
  • Hvernig er öndun í öndunarvél frábrugðin spontan öndun?
  • Hvernig eru sjúklingar vandir af öndunarvél? Geta sjúkraþjálfarar komið þar við sögu?
  • Hvernig er staða þeirra sem hafa verið >48 klst. í öndunarvél?
  • Hvaða varúðar þarf að gæta við þjálfun sjúklinga á gjörgæslu?
  • Hvernig er eftirmeðferð háttað í dag?
  • Hvernig væri æskilegt að eftirmeðferð væri miðað við þá stöðu sem rannsóknir hafa sýnt að sjúklingarnir eru í?

Skráningarfrestur er til 1. október 2011

Umsjón:Dr. María Ragnarsdóttir, rannsóknasjúkraþjálfari á Landspítala
Fyrirlesarar auk Maríu: Brynja Haraldsdóttir, sjúkraþjálfari BSc., Dr. Gísli Einarsson, endurhæfingalæknir, Dr. Kristinn Sigvaldason, yfirlæknir á gjörgæsludeild, Rannveig J. Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur MS, Ólöf R. Ámundadóttir sjúkraþjálfari MS, stud PhD

Tími:Fös. 7. okt. kl. 9:00 - 17:00
Verð: 15.500 kr.
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7

Skjöl

Dagskrá




Til baka