Tilnefningar óskast til Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2011
Þann 3. desember næstkomandi, á alþjóðadegi fatlaðra, veitir Öryrkjabandalag Íslands, Hvatningarverðlaun sín í fimmta sinni, sjá slóð á upplýsingar um verðlaunin http://www.obi.is/um-obi/hvatningarverdlaunOBI
Tilnefningar fyrir árið 2011 óskast.
Veitt verða þrenn verðlaun, ein í hverjum flokki:
- einstaklings
- fyrirtækis/stofnunar
- umfjöllun/kynningar
til verðugra fulltrúa sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu, sem stuðla að einu samfélagi fyrir alla.
Tilnefna má sömu aðila og tilnefndir voru í fyrra ef vitað er að þeir falla undir þau markmið sem sett voru með þessum verðlaunum.
Tilnefningar sendist fyrir 12. september nk. á rafrænu formi á tölvupóstfangið hvatning@obi.is (einnig má senda tilnefningar í hefðbundnum pósti til skrifstofu ÖBÍ, en óæskilegt ef hinn möguleikinn er fyrir hendi). Rafrænt eyðublað til útfyllingar er væntanlegt í ágúst á heimasíðu ÖBÍ.
Til baka