Námskeið - Skoðun og meðferð á hálsi, brjósthrygg og axlagrind 2

03.03 2012

Námskeið í skoðun og meðferð á hálsi, brjósthrygg og axlagrind fyrir sjúkraþjálfara og lækna, verður haldið dagana 3. og 4 mars 2012

 

Leiðbeinendur eru sjúkraþjálfararnir Dr. Harpa Helgadóttir (PhD, MTC) og Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir (MMT). 

 

Námskeiðið verður haldið að Engjavegi 6, Reykjavík (salur D).

Markmið námskeiðsins: Að auka færni þátttakenda í að greina og meðhöndla truflanir í hálsi, brjósthrygg og axlagrind. Lögð verður áhersla á að námskeiðið nýtist í klínískri vinnu.

Tímafjöldi alls er 17 kennslustundir.

Hægt er að fá námskeiðið metið til tveggja einingu í masters námi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Viðkomandi þarf þá að þreyta skriflegt próf og gera stutt verkefni tengt námskeiðinu. Harpa og Hólmfríður munu sjá um bæði. Viðbótargjald fyrir þetta er 20.000 kr.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 en lágmark 10
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012

Verð: 50.000 kr (Þeir sem hafa áður farið á axlargrindarnámskeið hjá Dr. Hörpu Helgadóttur fá 10.000kr afslátt- endurgreitt við upphaf námskeiðs)

Matur og kaffi er innifalið í verði.

 

Dagskrá

Laugardagur:

 

Fyrirlestrar og verkleg kennsla hjá Dr. Hörpu Helgadóttur (PhD, MTC):

 

Kl 8:45 – 9:30          Skoðun og meðferð á stöðu- og hreyfitruflunum í hálshrygg

Kl 9:30 – 10:15        Verkleg kennsla

Kl 10:15 – 10:30      Kaffihlé

Kl 10:30 – 11:15      Skoðun og meðferð á stöðu- og hreyfitruflunum í brjósthrygg

Kl 11: 15 – 12:00     Verkleg kennsla

 

Kl 12:00-13:00         Matarhlé

 

Kl 13:00 – 13:45      Skoðun á stöðu- og hreyfitruflunum axlargrindar

Kl 13:45 – 14:30      Verkleg kennsla

Kl 14:30 – 15:15      Meðferð á stöðu- og hreyfitruflunum axlargrindar

Kl 15: 15 – 15:30     Kaffihlé

Kl 15:30 – 17:00      Verkleg kennsla

 

Sunnudagur:

 

Fyrirlestrar og verkleg kennsla hjá Hólmfríði B. Þorsteinsdóttur (MMT):

 

Kl 8:45 - 9:30: Lífaflfræði og afleiðingar hálshnykksáverka

kl 9:30 - 10:15: Sérhæfð skoðun og meðferð eftir hálshnykksáverka - með áherslu á stjórnun og skyn háls og tengdra svæða, jafnvægis, sjónar o.s.frv.

kl 10:15-10:30 Kaffihlé

 

10:30 - 11:15: Verkleg kennsla í skoðun háls út frá hreyfistjórn og skyni
11:15 - 12:00: Æfingameðferð fyrir hálsa með hreyfistjórnunarvandamál

 
 

12:00-13:00         Matarhlé

 
 
Fyrirlestrar og verkleg kennsla hjá Hólmfríði B. Þorsteinsdóttur (MMT):
 
Kl 13:00 – 13:45      Skoðun og meðferð háls með áherslu á “manual therapy”
Kl 13:45 – 14:30      Verkleg kennsla í skoðun háls með áherslu á "manual therapy"
Kl 14:30 – 15:15      Verkleg kennsla í meðferð háls með áherslu á "manual therapy"
Kl 15: 15 – 15:30     Kaffihlé
Kl 15:30 – 16:15      Samantekt og spurningar

Verð: 65000 kr. Verð til félaga: 50000 kr.



Þú ert ekki skráð(ur) inn.

Til að bóka sig á námskeið er nauðsynlegt að vera skráður notandi á vefnum. Skráið ykkur inn hér til hliðar eða veljið nýskráning ef þið eruð ekki félagar í FÍSÞ. Þegar þið hafið skráð ykkur inn þá getið þið bókað ykkur á námskeið hér.