Kallað er eftir ágripum á Dag sjúkraþjálfunar 2017

Framkvæmdanefnd Dags sjúkraþjálfunar leitar til allra félagsmanna eftir ágripum (abströktum) að efni til að kynna í fyrirlestri eða á veggspjaldi 

27.10.2016

Framkvæmdanefnd Dags sjúkraþjálfunar leitar til allra félagsmanna eftir ágripum (abströktum) að efni til að kynna í fyrirlestri eða á veggspjaldi 

Nú leitar framkvæmdanefnd í annað skipti til allra félagsmanna eftir ágripum að efni til að kynna í fyrirlestri eða á veggspjaldi á Degi sjúkraþjálfunar, sem haldinn verður þann 17. febrúar 2017.

Erindi og veggspjöld
Höfundar skulu taka fram fram hvort þeir óska eftir að halda erindi (t.d. um rannsókn, fræðsluerindi eða annað gagnlegt efni) eða sýna veggspjald. Framkvæmdanefnd, í samvinnu við vísindanefnd dagsins, áskilur sér rétt til að taka endanlega ákvörðun um hvort þátttakendur fái boð um að halda erindi eða veggspjald. Framboð efnis og fjölbreytileiki getur til dæmis haft áhrif á í hvorum flokknum ágripin lenda. Hafa skal í huga að fjöldi fluttra erinda er takmarkaður og getur sú staða komið upp að færri komist að en vilja.

Ágrip:

•         Ágripi skal skilað á rafrænu formi til framkvæmdanefndar
          (magnushilmars@gmail.com) fyrir 15. nóvember 2016.

•         Samþykkt ágrip verða birt í hefti sem dreift verður til þátttakenda á 
           Degi sjúkraþjálfunar 2017.

Leiðbeiningar um ágrip:

Innihald:

•         Titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda/kynnis feitletrað, vinnustaðir með tilvísun til höfunda,
           í þessari röð.

•         Ágripið skiptist í kaflana: Inngangur, Aðferðir, Niðurstöður, Ályktanir.

•         Hámarkslengd ágripa miðast við 250 orð, talið án titils, nafna höfunda og stofnana.

•         Ekki er tekið við töflum eða myndum.

 

Frágangur:

•         Word skjal, leturstærð 12 punktar, línubil 1,5 og leturgerð Arial.

•         Ágrip skulu vera skrifuð á íslensku eða ensku.

•         Í titli eiga ekki að vera skammstafanir. Í texta skulu skammstafanir skýrðar með fullum                  texta og síðan skammstöfun í sviga á eftir.

 


Vísindanefnd og framkvæmdanefnd Dags sjúkraþjálfunar