Reykjalundarnámskeið SÍBS á vorönn 2016
Til upplýsingar
Til upplýsingar
Reykjalundarnámskeið SÍBS á vorönn 2016 hefjast 18. janúar og snúa m.a. að geðheilbrigði og lýðheilsu. Námskeiðin eru aðlöguð útgáfa af námskeiðum sem notuð eru í meðferð á Reykjalundi. Sjá www.sibs.is/namskeid.
Eftirfarandi námskeið fara af stað í janúar:
· Streita og jafnvægi í daglegu lífi: Markmiðið er að fræða þátttakendur um streitu almennt og hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf. Hefst mánudaginn 18. janúar.
· Viltu kynnast HAM? Á námskeiðinu er farið yfir helstu kenningar og verkfæri í hugrænni atferlismeðferð (HAM). Hefst þriðjudaginn 19. janúar.
· Að takast á við króníska verki, fræðsla: Markmiðið er að fræða almennt um stoðkerfisverki og eigin áhrifamátt til bættrar heilsu og aukinna lífsgæða. Hefst miðvikudaginn 20. janúar.
· Hollara mataræði: Á námskeiðinu er farið yfir leiðbeiningar um hollt mataræði og tengsl við heilbrigði. Hefst fimmtudaginn 21. janúar.
Námskeiðin eru kennd af okkar færustu sérfræðingum á hverju sviði og þú getur treyst faglegu innihaldi þeirra.
Nánari upplýsingar um námskeiðin á vorönn má finna á www.sibs.is/namskeid.