Faghópur um barnasjúkraþjálfun
Próftæki barna
Næsti fundur Faghóps um barnasjúkraþjálfun verður miðvikudaginn 14. febrúar kl. 11:00-12:00.
Efni:
Umræðufundur um próftæki í sjúkraþjálfun barna. Eru núverandi próftæki góð og gild áfram eða þarf að bæta við nýjum? Hvað vantar?
Önnur mál (ef tími gefst til).
Staðsetning: Sjúkraþjálfarinn, Strandgötu 75 í Hafnarfirði.
Breytingar hafa orðið á stýrihópi faghópsins. Alexandra Guttormsdóttir hætti og í hennar stað kom Valgerður Jóhannsdóttir. Við þökkum Alexöndru kærlega fyrir vel unnin störf og bjóðum Valgerði velkomna í hennar stað.
Í faghópnum í ár sitja því:
Hanna Marteinsdóttir, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Björk Gunnarsdóttir, Æfingastöðinni
Valgerður Jóhannsdóttir, Sjúkraþjálfaranum í Hafnarfirði
Þeir sjúkraþjálfarar á landsbyggðinni sem hafa áhuga á að fylgjast með fundum eru hvattir til að láta okkur í faghópnum vita tímanlega svo hægt sé að koma því í kring.
Fyrir hönd faghópsins,
Björk Gunnarsdóttir
Sjúkraþjálfari