Viðburðir

Vorferð FSÖ

Félag sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu

  • 19.5.2017, Akranes - Stykkishólmur

FSÖ ætlar í sína árlegu vinnustaðheimsókn út fyrir borgarmörkin þann 19.maí n.k. Við ætlum að fara saman í rútu frá Laugarásbíói og liggur leiðin fyrst uppá Akranes þar sem við munum kynna okkur sjúkraþjálfunina og starfsemi heimilisins, því næst munum við bruna vestur á Stykkishólm. Hádegisverður og nesti í rútunni verður í boði. Á Stykkishólmi munum við heimsækja sjúkraþjálfunina á St. Franciskuspítalanum og fræðast um starfsemina þar.

Mjög spennandi ferð sem við hvetjum félagsmenn að fjölmenna í. Nánari upplýsingar munu berast síðar.

Nýjir félagar eru velkomnir í hópinn.

 

Stjórn FSÖ