Magnús Ólafsson sjúkraþjálfari er látinn

Frumkvöðull í sjúkraþjálfun og vinnuvernd

30.5.2019

Frumkvöðull í sjúkraþjálfun og vinnuvernd

Fallinn er frá Magnús H. Ólafsson sjúkraþjálfari. Magnús fæddist á Ísafirði árið 1940 og ólst þar upp en lærði síðan sjúkraþjálfun í Noregi. Hann starfaði víða um land, á Akureyri um langt skeið en einnig Patreksfirði. Síðar settist hann að í Reykjavík og starfaði mikið með Íþróttasambandi fatlaðra.

60905381_10217266831516564_7328071306354622464_nSjúkraþjálfarar hafa undanfarna daga minnst Magnúsar og segja að þarna hafi farið mikill frumkvöðull, bæði á sviði vinnuverndar og fleiri sviða, og honum er lýst sem öðlingi og hugsjónamanni.

Sigrún Knútsdóttir, fv. formaður FÍSÞ minnist Magnúsar og segir: “Man alltaf eftir því þegar við 3 Íslendingar mættum til náms í Statens fysioterapiskole í Oslo 1971 þá fengum við strax að heyra um “den flinke Magnus fra Island” svo að við fylltumst strax stolti.”

Meðfylgjandi er tengill á minningu um Magnús sem birtist á Hringbraut í vikunni.

https://www.hringbraut.is/frettir/magnus-helgi-er-latinn-ad-lata-gott-af-ser-leida-er-mikilvaegt-i-lifinu

Magnús var jarðunginn frá Grafarvogskirkju sl. mánudag.