Samkomulag hefur náðst milli FS og SÍ

Fréttatilkynning

14.11.2019

Fréttatilkynning

Fréttatilkynning - dags. 13. nóvember 2019 kl 20.00

Samkomulag hefur náðst milli Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um að fela gerðardómi að úrskurða um lagalega óvissu um gildistíma rammasamnings.

Það felur í sér að FS fellst á að starfað verði eftir samningnum á meðan á gerðardómsmeðferð stendur. Þetta þýðir að frá og með morgundeginum erum við aftur á tímabundnum samningi með eðlilegum rafrænum samskiptum við SÍ. “Það er mikilvægt fyrir okkur sjúkraþjálfara að SÍ hefur fallist á að jafnhliða verða hafnar viðræður um innkaupaaðferðir og leiðir til að koma á samningum um þjónustu sjúkraþjálfara”, segir Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara.


Samninganefnd sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara