Stjórn Vísindasjóðs FS auglýsir eftir umsóknum um styrki

Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018

22.11.2017

Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018

Styrkjum úr Vísindasjóði verður úthlutað á Degi Sjúkraþjálfunar, þann 16. mars 2018. Frestur til að skila inn umsóknum er til kl.23:59 þann 15. janúar 2018. Rétt til að sækja um styrki eiga fullgildir og skuldlausir félagsmenn fagdeildar FS.

Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem hægt er að finna á heimasíðu félagsins, physio.is (Um félagið-Stjórn og nefndir-Stjórn Vísindasjóðs). Þar er einnig að finna starfsreglur sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér tímanlega svo tryggt sé að umsókn sé vel unnin. Markmið Vísindasjóðs er að styrkja rannsóknarverkefni, þróunarverkefni, þýðingar á viðurkenndum mælitækjum og spurningalistum innan sjúkraþjálfunar, og viðamiklar ritsmíðar innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni/rannsóknir skulu hafa ótvírætt faglegt gildi innan sjúkraþjálfunar og vera faginu til framdráttar. Athygli er vakin á möguleikum á að sækja um styrki úr minningarsjóði Guðlaugar Pálsdóttur, fyrir verkefni í vinnuvistfræði eða tengdum sviðum.

Stjórn Vísindasjóðs hvetur alla, sem eru að vinna eða hyggjast vinna verkefni sem uppfylla kröfur sjóðanna, til að sækja um styrk. Umsækjendur skulu kynna sér starfsreglur sjóðsins og vanda umsóknir eins og kostur er. Ef ekki verður unnt að styrkja alla umsækjendur verður horft til gæða umsókna og vísindalegs gildi verkefna fyrir sjúkraþjálfun.

Senda skal umsóknir rafrænt á netfang nefndarmanna Vísindasjóðs:
bergbald@landspitali.is (Bergþóra Baldursdóttir),
harpahe@hi.is (Harpa Helgadóttir),
kbriem@hi.is (Kristín Briem)

Merkja skal að um umsókn í sjóðina sé að ræða.