Stjórn Vísindasjóðs FS auglýsir eftir umsóknum um styrki

Frestur til að skila inn umsókn er til kl. 23:59 þann 15. janúar 2021

18.12.2020

Frestur til að skila inn umsókn er til kl. 23:59 þann 15. janúar 2021

Stjórn Vísindasjóðs FS auglýsir eftir umsóknum um styrki

Frestur til að skila inn umsóknum í Vísindasjóð FS er til kl. 23:59 þann 15. janúar 2021. Rétt til að sækja um styrki eiga fullgildir og skuldlausir félagsmenn FS. Styrkjum verður úthlutað á Degi Sjúkraþjálfunar, þann 5. mars 2021.

Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem hægt er að finna á heimasíðu félagsins, physio.is (Um félagið-Stjórn og nefndir-Stjórn Vísindasjóðs). Þar er einnig að finna starfsreglur sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér tímanlega svo tryggt sé að umsókn sé vel unnin.

Markmið Vísindasjóðs er að styrkja rannsóknarverkefni, þróunarverkefni, þýðingar á viðurkenndum mælitækjum og spurningalistum innan sjúkraþjálfunar og viðamiklar ritsmíðar innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni/rannsóknir skulu hafa ótvírætt faglegt gildi innan sjúkraþjálfunar og vera faginu til framdráttar. Athygli er vakin á möguleikum á að sækja um styrki úr minningarsjóði Guðlaugar Pálsdóttur, fyrir verkefni í vinnuvistfræði eða tengdum sviðum.

Stjórn Vísindasjóðs hvetur alla, sem eru að vinna eða hyggjast vinna verkefni sem uppfylla kröfur sjóðanna, til að sækja um styrk. Umsækjendur skulu kynna sér starfsreglur sjóðsins og vanda umsóknir eins og kostur er. Ef ekki verður unnt að styrkja alla umsækjendur verður horft til gæða umsókna og vísindalegs gildi verkefna fyrir sjúkraþjálfun.

Senda skal umsóknir rafrænt á netfang nefndarmanna Vísindasjóðs:

Bergþóra Baldursdóttir: bergbald@landspitali.is

Guðný Lilja Oddsdóttir:glo@hi.is

Gunnar Svanbergsson: gunnar@stigandi.is

Merkja skal að um sé að ræða umsókn í sjóðina.