Útskrift sjúkraþjálfara 2019

Fyrsti hópur sjúkraþjálfara sem útskrifast með meistaragráðu í sjúkraþjálfun til starfsréttinda

24.6.2019

Fyrsti hópur sjúkraþjálfara sem útskrifast með meistaragráðu í sjúkraþjálfun til starfsréttinda


Um helgina brautskráðist frá Háskóla Íslands fyrsti hópur sjúkraþjálfara sem útskrifast með meistaragráðu í sjúkraþjálfun til starfsréttinda. Við bjóðum hópinn velkominn í raðir sjúkraþjálfara á Íslandi.

Utskrift2019_HI_sjthjAðalbjörg Birgisdóttir, sjúkraþjálfari MS, flutti kveðju kandídata við athöfnina. Það er mikill heiður fyrir Námsbraut í sjúkraþjálfun að nemandi frá námsbrautinni var beðinn um að sinna því hlutverki.

Einnig útskrifuðust tveir sjúkraþjálfarar með MS í heilbrigðisvísindum, þær Belinda Chenery og Hólmfríður H. Sigurðardóttir.

Fyrir hádegi sama dag, laugardaginn 22 júní, útskrifuðust 33 nemar með BS gráðu í sjúkraþjálfunarfræðum.