Golfmót sjúkraþjálfara 2017

Golfmót sjúkraþjálfara verður haldið á Garðavelli Akranesi föstudaginn 2. júní

18.5.2017

Golfmót sjúkraþjálfara verður haldið á Garðavelli Akranesi föstudaginn 2. júní

Golfmót sjúkraþjálfara verður haldið á Garðavelli Akranesi – föstudaginn 2. júní. Rástímar verða frá 13:00 – 15:00. Verð kr. 3500.-  

Fyrirkomulag: 

Punktakeppni með forgjöf, hámarksforgjöf er 28. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í karla og kvennaflokki. Einnig verða verðlaun fyrir besta skor án forgjafar hjá körlum og konum. Ekki er hægt að vinna til verðlauna bæði í höggleik og punktakeppni.

Sveitakeppni:  Vinnustaðir geta skráð sig í sveitakeppni, þá mun samanlagðir punktar tveggja efstu þátttakanda frá þeim stað gilda.   

Farandgripir eru fyrir 1. sætið í kvenna- og karlaflokki og sveitakeppni.
Nándarverðlaun fyrir næst holu á par 3 brautum.

Skráning er á golf.is
Undirbúningsnefndin.