Námskeið FS: Framhaldsnám í stoðkerfisfræðum

Klínískt námskeið í skoðun og meðferð hryggjar og aðlægra svæða, með handleiðslu - hluti 1 og 2

Lokað fyrir skráningu

  • Dagsetning:
    21. september 2018 - 30. nóvember 2018
  • Staðsetning: Húsnæði Ísí, Engjavegi 6
  • Bókunartímabil:
    2. júlí 2018 - 7. september 2018
  • Leiðbeinendur:
    Hólmfríður B Þorsteinsdóttir (umsjónarmaður), Karólína Ólafsdóttir, Harpa Helgadóttir, Gunnar Svanbergsson, Sigrún Konráðsdóttir
  • Almennt verð:
    218.000 kr.
  • Fagdeild verð:
    169.000 kr.

Námskeiðslýsing: Klínísk kennsla og þjálfun í heildrænni klínískri rökhugsun og ýmsum aðferðum við greiningu og meðferð á algengum stoðkerfisvandamálum á eftirtöldum svæðum: Hálsi, Kjálka, axlagrind, öxl, brjóstkassa, mjóbaki, mjaðmagrind og mjöðm. Farið verður í byggingu, starfsemi og tengingu þessara svæða og lögð áhersla á mismunagreiningar með raunverulegum dæmum. Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja auka færni sína í að skoða, greina og meðhöndla stoðkerfisvandamál á heildrænan hátt.

Innihald námskeiðs: 

  •  50 klst af fyrirlestrum og verklegum tímum sem dreifast á fjórar helgar á tímabilinu 21. september til 18. nóvember.
  • Verkefnavinna í tímum
  • Heimavinna, alls um 50 klst
  • Skoðun með samnemanda skv. stöðluðu mati, 4 klst
  • Tvær klukkustundar skoðanir með kennara og 1 klst umræða á eftir í hvort skipti (alls 4 klst).
  • Námsmat í lok námskeiðs sem byggir á hópverkefni (70%) og seinni skoðun með kennara (30%)
  • Mögulegt er að sækja um að fá námskeiðið metið til ECTS eininga hjá Háskóla Íslands ef nemandi er/fer í meistaranám í sjúkraþjálfun innan 5 ára.
  • Samkvæmt núverandi verklagsreglum er námskeiðið sambærilegt þremur helgar námskeiðum í tímafjölda þegar sótt er um álag vegna framhaldsmenntunar til SÍ.

  Tvær skoðanir eru gerðar á skjólstæðingi með kennara viðstaddan (maður á mann), annars vegar til að fá endurgjöf (feedback) og hins vegar til að meta færni nemandans í lok námskeiðs. Seinni skoðunin fer fram á tímabilinu 19. nóvember til 7. desember. Skoðanirnar eiga að vera gerðar á skjólstæðingum sem halda áfram í meðferð hjá nemandanum. Viðkomandi skjólstæðingur greiðir fyrir skoðunina skv. taxta og stöðu hjá SÍ til kennarans. Umræðutími nemanda og kennara í 1 klst eftir hvora skoðun er innifalinn í námskeiðisgjaldi.

Athugið að nokkrir tímar verða sameiginlegir með hópnum sem var í sambærilegu námi (aðeins hluta 1) á vorönn 2018.

Kennslumarkmið:

  • Dýpka þekkingu og skilning á líffæra- og lífeðlisfræði ofangreindra svæða 
  • Aukið öryggi í sögutöku og klínískri rökhugsun og þar af leiðandi í greiningu stoðkerfisvandamála á ofangreindum svæðum 
  • Færni í nýjum aðferðum (handtök æfð) við skoðun og meðferð ofangreindra svæða
  • Aukin færni í að skoða og meðhöndla stoðkerfið á heildrænan hátt
  • Betri skilningur á ýmsum þáttum myndgreininga sem skipta sjúkraþjálfara máli

Kennsla fer fram í húsnæði ÍSÍ sem hér segir:

  • Föstudaginn 21. september kl 15:00 -19:30
  • Laugardaginn 22. september kl 8:30 -18:00
  • Föstudaginn 26. október kl 16:00 – 19:00
  • Laugardaginn 27. október kl 9:00 – 16:30
  • Föstudaginn 28. september kl 14:30 – 21:00
  • Föstudaginn 16. nóvember kl 15:00 – 19:30
  • Laugardaginn 17. nóvember kl 8:30 - 17:30
  • Sunnudaginn 18. nóvember kl 8:30-16:00

Kennarar á námskeiðinu eru: 

Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis. 
Karólína Ólafsdóttir, master í manual therapy
Harpa Helgadóttir, sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis og PhD í sjúkraþjálfun
Gunnar Svanbergsson, sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis
Sigrún Konráðsdóttir, sjúkraþjálfari

Dagskrá

21. september (fös)

  • Kl 15:00-15:30 Kynning á námskeiðinu (F Hólmfríður)
  • Kl 15:30-18:30 Inngangur að sögutöku (F Karólína)
  • Kl 18:30-19:30 Áhugahvetjandi samtal (F Sigrún)
  • 2 stuttar pásur

22. september (lau)

  • Kl 8:30-12:45 Neðri hluti háls og efri hluti brjóstbaks (F+V Karólína)
  • Kl 12:45-13:30 Matur
  • Kl 13:30-17:40 Neðri hluti háls og höfuð (m.a. TMJ tengl) (F+V Hólmfríður)
  • Kl 17:40-18:00 Sett fyrir heimavinna og útskýrð (fyrir okt helgina) (Hólmfríður og Karólína)
  • 2 stuttar pásur 

 

28. september (fös)

  • Kl 14:30-17:30 Axlagrind (F+V Harpa)
  • Kl 17:30-18:00 Samlokuhlé
  • Kl 18:00-21:00 Thorax (F+ V Karólína)
  • 2 stuttar pásur 

 

26. október (fös)

 

 

  • Kl 15:00-19:00 Öxl (SSMP - Shoulder Symptom Modification Procedure) (F+V Sigrún) 
  • 1 stutt pása

27. október (lau)

  • Kl 9:00-10:30 Nemendur flytja verkefni (Karólína)
  • Kl 10:30-12:00 Mjóbak (F Karólína)
  • Kl 12:00-12:45 Matur
  • Kl 12:45-14:15 Myndgreining (F Gunnar)
  • Kl 14:15-16:30 Kjálki (F+V Gunnar)
  • 2 stuttar pásur

 

16. nóvember (fös)

  • Kl 14:30-17:30 Samantekt og farið yfir ”case” (Hólmfríður og Karólína)
  • Kl 17:30-18:00 samlokuhlé
  • 18:00-20:00 Mjóbak (F+V Karólína)
  • 1 stutt pása

17. nóvember (lau)

  • Kl 8:30-10:00 Mjóbak (V Karólína)
  • Kl 10:00-12.00 Mjaðmagrind, mjóbak, mjöðm (F Hólmfríður)
  • Kl 12:00-12:45 Matur
  • Kl 12:45-14:45 Mjaðmagrind, mjóbak, mjöðm (F Hólmfríður)
  • Kl 14:45-16:15 Mjóbak, mjaðmagrind, mjöðm; samspil (F Hólmfríður og Karólína)
  • Kl 16:15-17:00 Mjaðmagrind og mjöðm (V Hólmfríður)
  • 2 stuttar pásur 

18. nóvember (sun)

  • Kl 8:30-11:00 Upprifjun handtaka (V Hómfríður og Karólína)
  • Kl 11:00-13:00 Samantekt og „case“ (F Hómfríður og Karólína)
  • Kl 13:00-13:45 matur
  • Kl 13:45-16:00 Nemar flytja lokaverkefni (Hómfríður og Karólína)



F: Fyrirlestur

 

V: verklegt – í flestum verklegum tímum eru 2 kennarar ef fjöldi nema fer yfir 12

 

 

Annað:
Skoðun með samnemanda þar sem staðlað form er fyllt út, þarf að skila til Karólínu í tíma þann 27. október. Fyrri skoðun með kennara (æfing) þarf að gera á milli 29. október og 16. nóvember. Seinni skoðun með kennara (próf) þarf að gera á milli 19. nóvember og 30. nóvember. Þessi skoðun er til einkunnar (30%) en einungis er gefið staðið eða fallið. 70% einkunnar er fyrir lokaverkefni, en þar er gefin einkunn á bilinu 0-10. Nemandinn verður bæði að ná lokaverkefninu og skoðuninni til að fá einkunn fyrir þetta námskeið sem er skilyrði HÍ til að fá metnar ECTS einingar. Ef nemandi fellur í skoðun má hann endurtaka hana með öðrum skjólstæðingi.

Lokað fyrir skráningu