Golfmót sjúkraþjálfara 2020

Golfmót sjúkraþjálfara 2020 fer fram á Leirdalsvelli, hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG), miðvikudaginn 2. september næstkomandi.

14.8.2020

Golfmót sjúkraþjálfara 2020 fer fram á Leirdalsvelli, hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG), miðvikudaginn 2. september næstkomandi. 

Ágætu sjúkraþjálfarar, kollegar og síðast en ekki síst golfarar!

Golfmót sjúkraþjálfara 2020 fer fram á Leirdalsvelli, hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG), miðvikudaginn 2. september næstkomandi. Leiknar verða 18 holur í fjögurra manna hollum frá fyrsta teig frá kl. 12:00-13:30, alls tíu holl.

Skráning verður í gegnum GolfBox og opnar hún miðvikudaginn 19. ágúst og lokar á miðnætti fyrir mótið. Hlekkur fyrir skráningu er https://tourentry.golfbox.dk/?cid=2583631. Þeir sem ekki eru skráðir í golfklúbb skrá sig einnig í gegnum GolfBox og er það gert með því að velja "Annað samband / handvirkur innsláttur" (e. "Other union / manual entry"). Þið veljið ykkur sjálf rástíma en til þess að gera mótið skemmtilegra og kostnaðinn við það lítinn viljum við biðla til ykkar að reyna að fylla holl en ekki spila í hálftómum eða hálffullum hollum. Jafnframt viljum við fylla fyrstu hollin fyrst. E.t.v. gæti þurft að sameina einhver holl en við reynum þetta svona :)

Engin hámarksforgjöf er fyrir aðgöngu að mótinu en hærri forgjöf en 36 verður lækkuð í 36.

Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir höggleik karla og kvenna, fyrstu þrjú sæti í punktakeppni karla og kvenna, liðakeppni (2-4 í liði en engin skylda að vera í liði yfir höfuð) og nándarverðlaun á völdum par 3 holum.

Bikarhafar síðasta árs eru beðnir um að koma með gripina á mótið.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 40 manns.

Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við Vilhjálm (gvk1991@gmail.com) eða Rúnar Karl (runarkarl3@gmail.com), sjúkraþjálfara á Landspítalanum.

Þátttökugjald er 5.000 kr.