Niðurstöður formannskjörs Félags sjúkraþjálfara
Kosningu lauk kl. 17:00 föstudaginn 16. febrúar
Kjörsókn var góð
Kosningu til formanns Félags sjúkraþjálfara er nú lokið.
Á kjörskrá voru skuldlausir félagar í Félagi sjúkraþjálfara, eða samtals 740 og var kjörsókn 58,94%.
Í framboði til formanns voru tveir, þeir Gunnlaugur Már Briem og Högni Friðriksson.
Niðurstöður kosninga eru svohljóðandi:
Gunnlaugur Már Briem hlaut 93,79% atkvæða
Högni Friðriksson hlaut 6,21% atkvæða
Það er því ljóst að Gunnlaugur Már Briem er réttkjörinn formaður til næstu tveggja ára og hefst kjörtímabilið á aðalfundi félagsins sem fer fram þann 13. mars nk.
16. febrúar 2024
Kjörstjórn
Guðný Björg Björnsdóttir
Margrét Sigurðardóttir
Sigurður Sölvi Svavarsson